Aðalfundur 26. apríl 2012
Aðalfundur SKAUST 26.4.2012
Mættir 13
- Þorsteinn Ragnarson formaður setur fund og skipar Þórhall Borgarson fundarstjóra og Guðmund Magna Bjarnason fundarritara.
- Þorsteinn les skýrslu stjórnar og fer yfir árið 2011 mótanefnd er þakkað sérstaklega fyrir kraftmikla dagskrá
- 127 manns greiddu félagsgjöld og 56 manns keyptu lykil að riffilhúsi
- Starfsemi stjórnar kynnt: 9 fundir skráðir, stór hluti starfs stjórnar var að skrifa umsagnir og gera athugasemdir við löggjöf. Atast var í samgöngumálum sem fyrr.
- Bjarni Þór kynnir ársreikning. Skýrsla stjórnar og ársreikningur samþykkt einróma.
- Engar lagabreytingar bornar upp
- Bjarni Þór kosinn fromaður einróma. Þorsteinn B. Lætur af embætti.
- Þórhallur Borgarson lætur af embætti
- Þorsteinn Erlingsson og Baldur Reginn Jóhannsson koma inn í stjórn.
- Varamenn eru Guðmundur Magni, Þorsteinn Baldvin og Eyjólfur Skúla.
- Stjórn SKAUST árið 2012 er því eftirfarandi
- Bjarni Þór Formaður
- Dagbjartur
- Úlfar
- Þorsteinn Erlingsson
- Baldur Reginn
Varamenn
- Guðmundur M
- Þorsteinn B
- Eyjólfur Skúla
- Árgjald er ákveðið 4000 kr og helst því óbreytt.
- Önnur Mál
- Þórhallur Borgarsson tekur til máls og óskar nýrri stjórn velfarnaðar ásamt því að tilkynna að hann eigi eftir að hafa mikil samskipti við nýja stjórn sem formaður félags hreindýraleiðsögumanna.
- Þorsteinn B. Þakkar fyrir sig
- Dagbjartur stígur í ponntu og skýrir frá stöðu við trappvél.
- Baldur Reginn kosinn í riffilnefnd
- Haglabyssunefnd skipa Sveinbjörn V. Jóhansson, Tomasz Stanislawson og Guðmundur M.
- Aðgengismál rædd og útskýrð af hálfu stjórnar.
- Skorað á nýja stjórn að nýtt merki félagsins verði valið og kynnt á árinu.
- Sagt frá því að Bjarni Þór nýkynntur formaður félagsins hafi sótt peninga til sveitarfélgagsins sem búið var að lofa félaginu. Jafnframt kemur það fram að fjárhagur félagsins sé í góðum málum.
Fundi slitið.