Stjórnarfundur 9. febrúar 2011
Stjórnarfundur SKAUST 09.02.2011
Mættir: Þorsteinn, Þórhallur, Guðmundur, Úlfar og Dagbjartur.
- Þorsteinn setti fundinn.
- Steini lagði fram pappíra frá veiðivef.is, en þeir fóru fram á stuðning eða styrk, og var þetta rætt lítilega.
- Ákveðið að Steini myndi rissa upp á pappír veg frá brúnni upp á Eyvindarárdal og niður að skotsvæði og leggja fyrir bæjarskipulagið.
- Guðmundur sagði frá því að Bjarni Haralds sé að vinna í heimasíðumálum og yrði netslóðin www.skaust.net.
- Ákveðið að halda aðlfund fimmtudaginn 31 mars 2011 kl 20:00.
- Rætt um tryggingar varðandi fyrirhugaða byssusýningu og ákveðið að Steini tali við Metúsalem hjá VÍS varðandi það mál.
- Stefnt á að vera með kynningarbækling á byssusýnigunni og ákveðið að Dagbjartur sjái um það.
- Stefnt á að græja frystiklefann í sláturhúsinu föstudagskvöldið fyrir byssusýninguna.
Fleira ekki gert, fundi slitið
Dagbjartur