Stjórnarfundur 19.09.2016
Á fundinn eru mættir: Bjarni, Haraldur, Steini, Kristján og Sigurgeir. Fundargerð ritar Sigurgeir.
Dagskrá
1. Fara yfir starfsárið 2016
– Gott ár fyrir haglabyssunefnina, settur upp posi sem fékk mjög vel.14 keppendur voru á mótum ársins.
2. Hvað á að gera fyrir veturinn
– Rætt var um að setja upp mót fyrir rjúpnaveiðitímabilið, í kringum 15, okt? Stefnt á að setja upp nokkur mót í vetur, bæði riffilmót og haglabyssumót. Búið er að bera á húsin fúavörn. Rétta þarf húsin af fyrir veturinn, rætt um að auglýsa eftir fólki til þess. Eins rætt um að fá Brúarbræður (Austurverk) til að taka til í kringum svæðið. Fúavörn, Bíslag, vegagerð. Eins þarf að setja pappa á þak Skeet húsa.
3. Ferðastyrkir og reglur
– Rætt er um að það verði skilyrði fyrir ferðastyrkjum á mót annarsstaðar, að menn taki þátt í innanfélagsmótum áður en til styrkveitinga komi. Þetta eigi við um stór mót á Íslandi og heimsmeistaramót. Ákveðið að Bjarni sjái alfarið um þessi mál.
4. Önnur mál
Rætt um verklegu skotvopnanámskeiðin. Að þær reglur verði settar að menn þurfi að skjóta 10 skotum á dúfur, 10 skotum af 22cal og 5 skot af stórum rifflum. Það þarf að fá einhvern til að stjórna þessu, 1-2 einstaklinga sem fara fyrir 10 manna hópum í ca. 2 klst í senn.
Helga frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands mætti til að taka út starfsemina.
Hún setti út á eftirfarandi:
- Það þarf að hækka brunninn til að ekki leki inn í hann
- Það þarf að girða utan um brunninn.
- Sett út á Rafgeyma og olíusmit út frá Rafstöðinni.
- Það var rætt um að fá menn í að laga þessi verkefni og að steypa brúarendana.