Stjórnarfundur 22.01.2016
Á fundinn eru mættir: Bjarni Þór Haraldsson, Haraldur Klausen og Kristján Krossdal.
- Styrkir:
- Rætt um að hugsanlega sé hægt sækja Bravo styrk frá alcoa uppá 645.000.
- Eins verður hægt að sækja um Action styrk frá Alcoa þar sem Alcoa leggur fram 345.000kr + vinnuafl til að framkvæma það sem sótt er um styrk í.
- Ræddum hugmyndir um að gera einhverskonar samning við Austurverk um þjónustu á veginum frá Mjóafjarðarvegi og upp að svæði. Þarf að ráðast í örlittlar endurbætur næsta sumar. Reyna að veita vatni af slóðinni eða setja hólk.
- Þurfum að gera böltann á haglabyssuvellinum betri, þ.e. setja jöfnunarlag og steypta palla eða tré palla þar sem skotmenn eiga að standa.
- Aðalfundurinn er eftir u.þ.b. tvo mánuði og ætlunin er að hafa Villibráðahlaðborð líkt og í fyrra á honum og athuga hvort við getum fengið að vera í Oddfellow húsinu. Þurfum að virkja villibráðanefnd. Elmar á Urriðavatni ætlar að gefa hreindýrslæri til að hafa á hlaðborðinu.
Fleira var ekki rætt og fundi slitið.