Stjórnarfundur 05.08.2015
Á fundinn eru mættir: Bjarni Þór Haraldsson, Haraldur Klausen og Kristján Krossdal.
- Brúin rædd
Það sem er eftir: Steypa smá undir enda á brú til þess að fínefnið renni ekki undan. Setja víra í handrið sem Sveinbjörn er búinn að setja upp. Ragnar Bjarni Jónsson í Landsnet ætlar að skaffa víra og setja upp. Bjarni ætlar að fara og skoða vírana og sjá hvort ekki sé hægt að drífa þetta upp fljótlega. Setja spýtur í brúargólf svo ekki sé keyrt útaf brúnni.
- Haglabyssusvæðið
Þurfum að græja tvíleiðara á milli nýju kastara og gamla til að hlaða inn á geyma. Þurfum að smíða eitthvað utan um kastara eða setja körin sem við fengum. Staðsetning kastara rædd og að setja saman vaktaplans leiðbeiningar.
- Formleg opnun brúarinnar og haglabyssusvæðisins rædd
Vera með holulæri á teitinu. Hafa samband matarnefndina. Um tvö leitið. Ákveðið að byrja hátíðina um 13:00 og vera með matinn á milli 14 og 15. Halli ætlar að vera með boga og leyfa gestum að prufa. Björgvin í veiðiflugunni ætlar að koma með byssur til sýnis og leyfa fólki að prófa. Kristján Krossdal verður á staðnum með leiðsögn og segir frá nýja vellinum.
- Önnur mál
Salernisaðstaða, ekki hægt að loka hurðinni.
Þurfum að hnoða saman öryggisreglum fyrir svæðið.
Aðgangur að haglabyssusvæði verður lokaður nema á auglýstum opnunartímum.
Nefndarmenn skipta með sér verkum:
Bjarni:
- Athuga með hvort hægt sé að tryggja brúna.
- Bjarni ætlar að ýta brúarhandriði áfram.
- Fá þrjú fiskikör hjá loðnuvinnslunni.
- Tala við Sigga Kára – rafgeymar.
- Kaupa 200m tvíleiðara í Rönning.
- Fá öryggisgleraugu.
- Athuga með Byssuskáp hjá Veiðiflugunni.
- Athuga með Benelli hjá Veiðihúsinu.
- Vesturröst og Veiðihornið hafa samband.
Krossdal:
- Græja farstýringu þegar takkarnir koma.
- Græja leirdúfu miða í litum.
- Græja vaktarplana leiðbeiningar.
- Græja uppgjörsblöð.
- Laga format á texta í öryggisreglum.
- Tala við matarnefnd um holulæri á Ormsteitinu.
- Athuga með tófumyndavél hjá Magg Ragg.
- Útbúa boðskort fyrir styrktaraðila.
- Tala við START útaf partítjaldi fyrir Ormsteitið.
- Kanna RFID kort.
- Breyta verðskrá á SKAUST dúfur.
- Mæta með hefil og taka af hurðinn.
Halli
- Prenta út og plasta öryggsreglurnar.
- Halli ætlar að útbúa skilti.
Steini
- Jöfnunarlag á böltann.
- Steiptu klumpana á skotpallana.