1. stjórnarfundur mars 2014
- Fundur nýkjörinnar stjórnar. Haldinn í marsmánuði 2014
Mættir eru:
Bjarni Þór Haraldsson
Baldur Reginn Jóhannsson
Haraldur Klausen
Sigurgeir Hrafnkelsson.
Stjórn skipti með sér verkum.
Bjarni formaður
Haraldur gjaldkeri
Sigurgeir ritari
Baldur meðstjórnandi
Þorsteinn Lákason er varamaður í stjórn en situr ekki þennan fund.
- Samgöngumál rædd. Ræddur fundur sem Bjarni átti við bæjarstjórn um vegagerð að skotsvæði. Brúargerð og slóðagerð rædd en erindi var fellt í bæjarstjórn. Sent inn annað erindi sem beðið er svars við. Skaust á brúarbita
- Villibráðarkvöld. Rætt að 5-6 félagsmenn taki sig saman og veiði eða útvegi á annan hátt villibráð fyrir kvöldið. Allir sammála um að hafa villibráðarkvöldið að hausti. Rætt að SKAUST leggi 50-60 þúsund til kvöldsins. Fyrsta kvöldið er villibráðarkvöldið var haldið mættu 30 félagsmenn sem greiddu 2500 kr.á mann.
- Bogfimi. Bjarni ætlar að hafa samband við Davíð Þór Sigurðsson formann Hattar og ræða við hann að setja SKAUST undir Hött vegna unglingastarfs í bogfimi. Þannig fengist ódýrara húsnæði fyrir starfsemina.
- Vinnukvöld eða vinnudagar. Margir vinna orðið á vöktum svo að það getur hentað mörgum betur að koma að degi til. Aðkallandi verkefni eru : Brunnmál, Bíslag og Hellulögn. Rætt að þurfi að setja upp vinnuplan og fá svo félagsmenn markvisst til að vinna eftir því. Stefnt að því að hafa fyrsta vinnudaginn fljótlega uppúr páskum.
- Mótmæli komu fram á aðalfundi um merki SKAUST. Stjórn er sammála um að vera ekkert að bregðast við að svo stöddu.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.